Geirfuglarnir skemmta á ballinu!
Það er hér með gert opinbert að hljómsveitin Geirfuglarnir munu spila á grímuballinu á föstudaginn. Geirfuglarnir eru mjög vinsælir í samkvæmum sem þessum og spila allt milli himins og jarðar, t.a.m. kunna þeir Kokkinn, stefið úr Derrick þáttunum og líka lög með AC/DC.Geirfuglana skipa; Halldór Gylfason söngvari og rauðhærður leikari með krullur, Freyr Eyjólfsson mandólínleikari og dagskrárgerðarmaður á Rás 2, Stefán Már Magnússon bassaleikari og sonur Magga Eiríks, Þorkell Heiðarsson harmonikkuleikari og líffræðingur, Ragnar Helgi Ólafsson gítarleikari og einn helsti bókakápugerðarsnillingur Íslands og loks Andri Geir Árnason trommari og símsmiður.

2 Comments:
At 11:59 AM ,
Anonymous said...
Ég fór einu sinni á frábært Geirfuglaball, besta ball sem ég hef farið á!!!!!
At 8:14 AM ,
Anonymous said...
Var dansaður fugladansinn?
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home