Starfsmannafélag Pennans

Tuesday, September 05, 2006

Skráningin hefur aukist dag frá degi...!

Nú fara línur að skýrast, fólk er að taka við sér og skrá sig á ballið! Allir eru að átta sig á hversu gaman þetta verður. Það eru engar kvaðir með búninga eða slíkt, látið ekki búningavöntun stoppa ykkur og svo er sjálfsagt að bjóða vinum sínum með, það kostar 1.000 kr,- fyrir aðra en starfsmannafélagsmeðlimi.
Við höfum öll gott af því að verðlauna okkur sjálf fyrir góða skólavertíð, hittast og skemmta okkur ærlega á þessu skemmtilega skralli!
Borgar Jónsteinsson rekstrarstjóri verslunarsviðs er eins og er í sumarfríi og kemst ekki á ballið, sem er mjög leiðinlegt. En Borgar má eiga það að hafa verið sniðugur og keypt búning. Hann vildi nefnilega ekki missa af búningaverðlaununum og sendi inn þessa mynd. Borgar minn, við skulum taka hana með í keppnina en við lofum engum árangri!

1 Comments:

  • At 2:42 AM , Anonymous Anonymous said...

    LOL
    Guuuð hvað ég hlakka til að mæta.... Þetta verður algjör snilld.

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home