Starfsmannafélag Pennans

Thursday, September 07, 2006

Föstudagsfjörið, áfram með smjörið!

Nú er allt á suðupunkti. Það er mjög góður fjöldi fólks sem ætlar að mæta og heyrst hefur að metingur sé orðinn mikill meðal fólks. Þannig heyrðist af þeim Kjartani og Ingþóri rífast á skrifstofu Pennans um hver hefði fjárfest í dýrari og flottari búningi. Það mun koma í ljós í kvöld. Þeir leggja línuna fyrir sínar deildir og skora á allt sitt fólk á vörusviði og verslanasviði að mæta í stuði niðrí Laugardal.
Mikið kapp hefur færst í starfsfólk verslananna um mætingu. Nú er staðan þannig að Penninn Kringlunni er algjörlega að mala þetta. Starfsfólk Pennans KR verða með yfir 100% mætingu!! Allir mæta og síðan bætast makar í hópinn. Ef við þekkjum starfsfólk annarra verslana rétt þá mun þessi frétt virka sem olía á eldinn.
Við hvetjum alla starfsmenn að taka með sér vini og vandamenn. Húsið opnar kl. 21.00. Fjöldi vinninga verður gefinn fyrir bestu og frumlegustu búningana. Hljómsveitin hefur óskað eftir að fá að taka þátt í búningakeppninni. Gangi þeim vel að finna Geirfuglabúninga, þeir búningar eru löngu útdauðir.

Við látum svo fylgja með mynd af leynigesti kvöldsins, þarna var hann að máta búninga í vikunni og orðinn mjög spenntur...eins og sést glögglega!

1 Comments:

  • At 8:14 AM , Anonymous Anonymous said...

    Hey, hvar náðuð þið í myndir af kærastanum mínum???
    Kv. Kanínan

     

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home