Verndari ballsins!
Kæru starfsmenn Pennans,mér er það mikill heiður að halda verndarhendi yfir skralli ykkar í kvöld og vona að þið gangið hægt um gleðinnar dyr. Allt frá því að ég var lítill strákur á Ísafirði hef ég haft lúmskt gaman af því að klæða mig upp í búninga og hver kannast ekki við það að hafa laumast í fataskáp móður sinnar svo ég tali ekki um snyrtivörurnar. Þið starfsfólk Pennans hafið verið mér ansi kært í gegnum tíðina og eins og ég hef sagt með okkur íslendinga, sem erum herlaus þjóð, þá höfum við það að leiðarljósi "að penninn er máttugri en sverðið". Þess vegna mætti segja að þið annist varnir landsins.
Engu að síður vænti ég þess að þið gleðjist saman og njótið samvista með félögum ykkar sem þið hittið jafnvel einungis á vinnutíma.
Við Dorrit komumst því miður ekki í kvöld en biðjum kærlega að heilsa...!
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson

1 Comments:
At 9:40 AM ,
Raggi said...
Hann lengi lifi, húrra, húrra, húrra, húrra!
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home