Frábær stemning!
Frábær stemning hefur myndast fyrir Grímuballinu og frést hefur að mikill metnaður sé uppi í mörgum deildum Pennans með að vinna búningakeppnina, enda heiðurinn mikill og glæsileg verðlaun í boði. Búningakeppnin er í 4 flokkum:Flottasti búningurinn
Frumlegasti búningurinn
Mesta viðleitnin
Besti vinnustaðurinn
Fulltrúi Starfsmannafélagsins hitti fyrir í vikunni glæsilegan hóp nýliða innan raða starfsmanna Pennans. Þeir voru hinir hressustu og hlökkuðu mikið til grímuballsins. Við bjóðum þau sérstaklega velkomin í hópinn og hlökkum til að sjá þau á ballinu í sínu skrítnasta pússi...!
Fréttaritari Starfsmannafélagsins tók stutt viðtal við söngvara og framherja hljómsveitarinnar Geirfuglanna; Halldór Gylfason.Blm: Sæll Halldór, hvernig er stemningin í herbúðum Geirfugla fyrir Grímuballið næst helgi?
HG: Já, blessaður. Það mætti segja að það væri blanda af tilhlökkun og kvíða.
Blm: Nú, hverju er að kvíða?
HG: Jahh, við höfum verið í basli með búningana okkar. Vonum að þeir verði tilbúnir fyrir ballið. Þegar búið var að hanna sniðið fórum við í að gradera fyrir hvern og einn og svo á Þorkell harmonikkuleikari overlock vél heima og er að reyna að tjasla þessu saman.
Blm: Nohh. Það er allt lagt í þetta. Hvernig búningar eru þetta og hvað verður á prógramminu þetta kvöld.
HG: Ef ég ætti að segja þér það þá þyrfti ég kála þér í framhaldi, svo mikil leynd hvílir yfir þessu. Viltu það...?
Blm: Uhhh.. nei takk! Óþarfi að vera með einhverjar hótanir. Viltu segja eitthvað að lokum?
HG: Já, við sjáumst bara í fantastuði næsta föstudag, við skemmtum okkur mjög vel með starfsmönnum Pennans á árshátíðinni og hlökkum til að hitta sem flesta.
Blm: Takk fyrir.


2 Comments:
At 4:49 AM ,
Anonymous said...
Hlakka svo til!
At 4:42 PM ,
Anonymous said...
heyrst hefur að Rambó sjálfur muni mæta á staðinn.... óstaðfestar heimildir þó ;o)
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home