Lokaútkall
Starfsmenn Pennans kalla ekki allt ömmu sína greinilega (sem er mjög gott, það er mjög slæmur ávani þegar fólk kallar alla ömmu sína) og ætla að fjölmenna á Grímuballið. Við erum búin að telja saman allt að 70 manns sem við vitum um að eru á leiðinni. Nokkur vinnustaðapartí verða víst fyrir ball þar sem fólk getur borið saman búninga sína fyrir ballið.Við erum rosa ánægð með undirtektirnar og hlökkum mikið til að sjá ykkur í kvöld. Við hvetjum alla til að draga vini og vandamenn með í kvöld. Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur á að mæta á grímuball með frábærri hljómsveit. Svo er það alls ekki skilyrði að vera í búningi en það er bara skemmtilegra. Það er meira að segja ekki skilyrði að vera í góðu skapi, fólk má vera í fýlu þegar það kemur. En það fer enginn af ballinu í fýlu, það er skothelt.
Hér eru blákaldar staðreyndir
Hvað: Grímuball Pennans
Hvar: í Þróttaraheimilinu í Laugardal
Hvenær: Nú, í kvöld milli kl. 22 -02
Hvernig: við skemmtum okkur með því að dansa og spjalla, grínast og sprellast. Geirfuglarnir spila frábæra músík og svo er barinn opinn með veigar á kostnaðarverði. Samt er ekki bannað að taka með sér veigarnar.
Hvers vegna: vegna þess að þetta er gott tækifæri til að hittast og skemmta sér með félögum og vinum, fara í búninga og hlæja.
(myndin er tekin á nýliðakynningu á dögunum þar sem Kjartan Kjartansson heilsaði uppá nokkra nýja starfsmenn í röðum Pennans)

1 Comments:
At 11:47 AM ,
Esox lucius said...
hvernig var það, var ekki tekið helling af myndum þarna :)
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home