Starfsmannafélag Pennans

Thursday, August 31, 2006

"Skráðu þig núna og þú getur unnið Samsung örbylgjuofn með tímastilli og fjarstýringu og bla bla bla.."!

Í dag munu sérstakir "til minnis-bannerar" verða settir upp á hverjum vinnustað ásamt skráningarblaðinu. Það gæti borgað sig að skrá sig í tíma. Maður veit aldrei hvaða uppátæki ballhaldarar eiga á takteinum.
Ragnar Veigar Guðmundsson er einn af mörgum sem er búinn að skrá sig á ballið. Grimuball aldarinnar tók því ör-viðtal við kappann:

G: Blessaður Raggi.
R: Já, hæ!
G: Ertu ekki í stuði fyrir grímuballið?
R: Ballið er nú reyndar ekki fyrr en næstu helgi þannig að ég er alveg rólegur ennþá.
G: Ertu búinn að finna búning?
R: Já já já..!
G: Nú, hvað ætlaru að vera?
R: Ég ætla að vera Magni í Rockstar....nei, djók. Ég ætla ekkert að segja ykkur hvað ég ætla að vera!
G: Allt í lagi þá. Sjáumst á föstudaginn 08. september í brjáááááluðu stuði!
R: Já, við sjáumst en róið ykkur aðeins niður, þið eruð alltof spennt!
G: Já, fyrirgefðu. Takk fyrir spjallið!

Wednesday, August 30, 2006

"Prófessorinn kennir dans"!


Ýmsar spurningar hafa komið upp um grímuballið og ein sem snýr að búningum yfirleitt. Að sjálfsögðu er það alls engin skylda að vera í búningi á ballinu. Það komast allir inn, en vitaskuld skorum við á fólk til að nota hugmyndaflugið og gera eitthvað. En við viljum endilega fá alla með! Þetta verður rosalega gaman og gott að hrista sig aðeins eftir skólastreðið!

(maðurinn á myndinni er alls ekki í grímubúning, hann er bara svona þegar hann hefur stimplað sig út sem vörustjóri erlendra bóka, tónlistar og myndefnis)

Friday, August 25, 2006

"Hva..verða einhverjar veitingar þarna?"


Heyrst hefur að stemningin sé jafnt og þétt að byggjast upp í ýmsum deildum Pennans. Við hleruðum í okkar fólki í nokkrum af verslununum og margir virðast vera búnir að leggja á ráðin með búninga. Þónokkrir á Hallarmúlasvæðinu eru búnir að skrá sig til þátttöku og sumir hverjir búnir að panta búning.
Þess má geta að seldar verða veitingar á staðnum á kostnaðarverði og svo er það ekki bannað að hafa það hreinlega meðferðis.
Þetta fer að vera spennandi...!

(þess má geta að maðurinn á myndinni hefur alls ekki áfengan drykk við hönd, reyndar er myndin samsett og glasinu var skeytt inná í stað Leitz gatara sem maðurinn hélt á!)

Thursday, August 17, 2006

Dustaðu rykið af ballskónum..þú ert á leiðinni á ball!

Grímuball í aðsigi. Frábær leið til að losa um spennu og skólastressið sem magnast hefur upp í sálu og líkama hvers starfsmanns Pennans.
Hér eru grunnupplýsingar, óþarfi að ljóstra öllu upp strax:
Hvað: Grímuball starfsfólks Pennans
Hvar: Félagsheimili Þróttar í Laugardal
Hvenær: Föstudagskvöld 08. september kl.21.00 - 01.00
Hvers vegna: Hittast og fagna nýliðinni skólavertíð.
Hvað kostar: 500 (starfsmannafélag), 1.000 (gestir)

FYLGIST MEÐ FRÁ BYRJUN!

(Það skal tekið fram að myndin sem fylgir fréttinni, tengist henni ekki endilega og að viðkomandi heiðursmenn eru ekki í grímubúningum á myndinni!)