Starfsmannafélag Pennans

Friday, September 21, 2007

Lokaútkall

Starfsmenn Pennans kalla ekki allt ömmu sína greinilega (sem er mjög gott, það er mjög slæmur ávani þegar fólk kallar alla ömmu sína) og ætla að fjölmenna á Grímuballið. Við erum búin að telja saman allt að 70 manns sem við vitum um að eru á leiðinni. Nokkur vinnustaðapartí verða víst fyrir ball þar sem fólk getur borið saman búninga sína fyrir ballið.

Við erum rosa ánægð með undirtektirnar og hlökkum mikið til að sjá ykkur í kvöld. Við hvetjum alla til að draga vini og vandamenn með í kvöld. Það er ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur á að mæta á grímuball með frábærri hljómsveit. Svo er það alls ekki skilyrði að vera í búningi en það er bara skemmtilegra. Það er meira að segja ekki skilyrði að vera í góðu skapi, fólk má vera í fýlu þegar það kemur. En það fer enginn af ballinu í fýlu, það er skothelt.

Hér eru blákaldar staðreyndir

Hvað: Grímuball Pennans

Hvar: í Þróttaraheimilinu í Laugardal

Hvenær: Nú, í kvöld milli kl. 22 -02

Hvernig: við skemmtum okkur með því að dansa og spjalla, grínast og sprellast. Geirfuglarnir spila frábæra músík og svo er barinn opinn með veigar á kostnaðarverði. Samt er ekki bannað að taka með sér veigarnar.

Hvers vegna: vegna þess að þetta er gott tækifæri til að hittast og skemmta sér með félögum og vinum, fara í búninga og hlæja.

(myndin er tekin á nýliðakynningu á dögunum þar sem Kjartan Kjartansson heilsaði uppá nokkra nýja starfsmenn í röðum Pennans)


Thursday, September 20, 2007

Erla og Magga ætla að skemmta sér ærlega

Blaðamaður Starfsmannafélagsins er sífellt á ferðinni og hefur fundið fyrir frábærri stemningu á ýmsum starfsstöðvum Pennans. Það ætla mjög margir að mæta og það er frábært, enda verður þetta bara eitt stórt Pennapartí. T.a.m. voru starfsmenn í Eymundsson Kringlunni-suður æðislega hressir og voru staðráðnir í því að vinna deildabikarinn (sem er farandbikarinn sem hver vinnustaður fær sem stendur sig best hverju sinni). Starfsmenn í Eymundsson Smáralind voru líka í þann mund að tjúna sig upp, starfsfólkið á Suðurlandsbraut 4 (Penninn Tækni, Fyrirtækjaþjónustan og Markaðsdeildin) voru líka í óða önn að skipuleggja hitting fyrir ballið og samræmingu í búningum, þannig að það er ljóst að það verða margir um hituna.

Á ferðinni hittum við Erlu Brynjars framkvæmdastjóra innlits, útlits, framstillinga- og fylgihlutasviðs verslana Pennans og Margréti verslunarstjóra í Hallarmúla 2. Þær voru á rúntinum.

Blm: Sælar stúlkur, eru þið orðnar spenntar?
Erla: Tíhíhí..já, við hlökkum svo mikið til. Erum að reyna að velja búningana.
Magga: .. við erum ekki alveg búnar að ákveða.
Blm: Eigið þið nokkuð í vandræðum með það?! Ég heyrði eitt gott ráð og það er að vera það sem manni langaði til að verða þegar maður yrði stór!
Magga: Mig langaði að verða bóndi.
Erla: Mig langaði að verða skreytla.
Blm: Óóóókei, en skemmtilegt! Hey, svo er líka sparnaður að finna bara einn búning eins og til dæmis að vera kýr. Þið dragið svo bara um hvor verður bakhlutinn.. eða skiptist á.
Erla: Það gæti samt orðið eitthvað vesen að fara niður í bæ eftir ballið, að komast inn á staðina og svoleiðis.
Magga: ..svo er víkingasveitin á vakt! Þeir hafa kannski aldrei sé kú á rölti í bænum og bregðast ókvæða við.
Blm: Já, það er rétt. Allavega ekki pissa á víðavangi ef þið farið niðrí bæ. Má bjóða ykkur óskalag að lokum?
Erla og Magga: Já, við viljum heyra lagið "..núna ertu hjá mér Nína"!
Blm: Hvað...Nína í Griffli þá?
Magga: Já, við viljum að Nína komi líka á ballið!
Blm: Glæsilegt, þakka ykkur fyrir og sjáumst annað kvöld!

Wednesday, September 19, 2007

Jón Múli ætlar að koma

Við heimsóttum Jón Múla verslunarstjóra Eymundsson í Kringlunni-norður í gær og tókum við hann stutt viðtal. Fyrir þau ykkar sem kannast ekki við að þekkja einhvern sem heitir Jón Múli þá er þetta hann Nalli okkar.

Blm: Sæll Nalli, takk fyrir að hitta okkur. Ég sé að þú ert að máta búninga...

Nalli: ..reyndar ekki. Það er bara byrjað að kólna úti svo ég ákvað að fara í eitthvað hlýtt.

Blm: Já, þú meinar. Þú varst á ballinu í fyrra og ætlar að sjálfsögðu að koma aftur, við hverju er að búast helduru?

Nalli: Ég veit það ekki, það var þrumustuð í fyrra, frábær hópur og dansað og sungið. Ótrúlegir búningar. Ég held að það sé varla hægt að toppa þetta.. en ég veit að við munum gera það. Mér skilst nefnilega að það verði mun fleiri á ballinu í ár.

Blm: Það er hárrétt. Ertu búinn að ákveða í hvernig búningi þú verður í?

Nalli: Já, mig langar að verða Tarzan. Það er voða einfalt og fljótlegt, líka mjög lítill efniskostnaður.. ég ætla samt að sjá til. Ég lofa engu.

Blm: Ehhmm.. hlakka til að sjá þig á föstudaginn. Það er eitt í lokin; ég má víst bjóða öllum viðmælendum mínum uppá óskalag í flutningi Geirfuglana, allt annað en Dire Straits! Hvað má bjóða þér?

Nalli: Vá, frábært. Uuuu..kannski ég fái lag með Rod Stewart. Maggie May.

Blm: Skal gert, ég læt þá í málið. Sjáumst og takk fyrir spjallið.

Friday, September 14, 2007

Frábær stemning!

Frábær stemning hefur myndast fyrir Grímuballinu og frést hefur að mikill metnaður sé uppi í mörgum deildum Pennans með að vinna búningakeppnina, enda heiðurinn mikill og glæsileg verðlaun í boði. Búningakeppnin er í 4 flokkum:
Flottasti búningurinn
Frumlegasti búningurinn
Mesta viðleitnin
Besti vinnustaðurinn

Fulltrúi Starfsmannafélagsins hitti fyrir í vikunni glæsilegan hóp nýliða innan raða starfsmanna Pennans. Þeir voru hinir hressustu og hlökkuðu mikið til grímuballsins. Við bjóðum þau sérstaklega velkomin í hópinn og hlökkum til að sjá þau á ballinu í sínu skrítnasta pússi...!


Fréttaritari Starfsmannafélagsins tók stutt viðtal við söngvara og framherja hljómsveitarinnar Geirfuglanna; Halldór Gylfason.

Blm: Sæll Halldór, hvernig er stemningin í herbúðum Geirfugla fyrir Grímuballið næst helgi?

HG: Já, blessaður. Það mætti segja að það væri blanda af tilhlökkun og kvíða.

Blm: Nú, hverju er að kvíða?

HG: Jahh, við höfum verið í basli með búningana okkar. Vonum að þeir verði tilbúnir fyrir ballið. Þegar búið var að hanna sniðið fórum við í að gradera fyrir hvern og einn og svo á Þorkell harmonikkuleikari overlock vél heima og er að reyna að tjasla þessu saman.

Blm: Nohh. Það er allt lagt í þetta. Hvernig búningar eru þetta og hvað verður á prógramminu þetta kvöld.

HG: Ef ég ætti að segja þér það þá þyrfti ég kála þér í framhaldi, svo mikil leynd hvílir yfir þessu. Viltu það...?

Blm: Uhhh.. nei takk! Óþarfi að vera með einhverjar hótanir. Viltu segja eitthvað að lokum?

HG: Já, við sjáumst bara í fantastuði næsta föstudag, við skemmtum okkur mjög vel með starfsmönnum Pennans á árshátíðinni og hlökkum til að hitta sem flesta.

Blm: Takk fyrir.

Friday, September 07, 2007

Grímuball aldarinnar... snýr aftur!

Já, þið heyrðið rétt. Það er komið að fyrsta atburði Starfsmannafélags Pennans haustið 2007. Og nú verður tekið á því með trukki og dýfu! Eftir vel heppnaða skólavertíð ætlum við öll að fjölmenna og skemmta okkur saman. Við bjóðum svo nýja starfsmenn í okkar liði sérstaklega velkomna og vonumst til að sjá þá á ballinu, enda tilvalin leið til að kynnast hópnum. Á sama tíma í fyrra fór hið goðsagnakennda Grímuball fram og vakti grenjandi mikla lukku viðstaddra. Æ síðan hefur stjórn Starfsmannafélagsins verið undir mikilli pressu frá starfsmönnum að halda grímuballið aftur. Og það er það nákvæmlega sem við ætlum okkur að gera!
(Á myndinni er einn sigurviss keppandi í búningakeppninni síðan í fyrra)



Grímuball Pennans


Föstudaginn 21. september 2007 kl. 22.00 - 02.00


Þróttaraheimilinu í Laugardal, hljómsveitin Geirfuglarnir skemmta.

Frítt inn fyrir alla starfsmenn Pennans, 500 kr. fyrir maka, vini og vandamenn. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegustu búningana.

Veitingar seldar á staðnum á kostnaðarverði, einnig er leyfilegt að koma með þær með sér.



For our english speaking friends:

The Return of Grímuball aldarinnar!

We are all going to a Grímuball (costume party) on the 21. of september. It is going to be hillarious fun. The Geirfuglar (great auks) will play tremendous but out of date (almost extinct) music. We are going to have a blast and take it with a truck and a dip.. if you not what we mean!

(on the pic you see a bee from our last Grímuball. "..to bee or not to bee in the best búningur")

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og færslur um Grímuballið 2006.

Fylgist með á þessari síðu, setjið hana í Favorites!