Nú falla öll vötn til Borgarfjarðar

Komið þið sæl,
nú er komið að því að við endurtökum fjölskylduferð sem var svo eftirminnileg þeim sem ekki misstu af henni í fyrra en þá fórum við í Þórsmörk.
Núna ætlum við á slóðir Egils Skallagrímssonar, Snorra Sturlusonar og Jóhönnu Elvu Ragnarsdóttur verslunarstjóra Eymundsson á Akranesi.
Við ætlum að kynnast unaðssemdum Borgarfjarðar!
Farið verður núna á laugardaginn 17. nóvember kl. 10.00 með rútu frá Hallarmúla. Við förum í heimsókn í Landnámssetrið í Borgarnesi munum keyra svo þaðan að Hvanneyri og kynnumst lífinu í sveitinni og komum svo við í hinum glæsta ferðamannastað Fossatúni og gæðum okkur á veitingum.
Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn.
Fjölskylduferð til Borgarfjarðar
Laugardaginn 17. nóvember kl. 10.00
Mæting á bílastæðið við Hallarmúla 4 (skrifstofu Pennans)
Miðaverð 1.000 kr. og 500 kr. fyrir börn.
Munið skáninguna á sameign/starfsmannafelag/borgarfjordur
