Takk fyrir skemmtunina!
Við sem störfum fyrir starfsmannafélagið viljum þakka öllum þeim sem komu á Grímuballið þarsíðustu helgi kærlega fyrir framúrskarandi kvöld. Mikið ofboðslega var gaman og þvílíka stemningu og dansfimi höfðu margir viðstaddra ekki séð í langan tíma. Hljómsveitin Geirfuglar biðja fyrir kærri kveðju til allra og hrósuðu ballgestum í hásterrt fyrir góðan anda og fyrir að stíga dans allt frá fyrstu tónum.( Á myndinni er Halldór Gylfason söngvari Geirfugla í William Shakespeare búningi að kenna gestum línudans. Til vinstri má sjá Dalmatíu-dívurnar úr Kringlunni)
Allt fór þetta vel fram og gestir voru hinir glæsilegustu. Kenna mátti ýmissa grasa: þarna voru blóm og býflugur, rauðhetta, bangsar og kanínur, annar kúrekinn í Brokeback mountain, Zorro, Bessastaðahjónin og margt fleira. Verðlaun voru veitt í nokkrum flokkum; fyrir besta búninginn hlaut Herdís í birgðabókhaldi verðlaun, verðlaun fyrir frumleika hlaut Erna símadíva og par kvöldsins var kosið Inga Rún og Haffi úr versluninni í Hallarmúla.(Á myndinni má greina Herdísi Þorgeirsdóttur í vægast sagt vafasömu gervi)
Að öllum öðrum ólöstuðum sem mættu þá er vert að nefna starfsfólk Pennans í Kringlunni sem mættu öll í þrumustuði og voru öll í samskonar búningum. Sérdeilis húrrandi skemmtileg. Fyrir frábæra þátttöku og sýnda samstöðu hljóta þau sérstök aukaverðlaun í formi glaðnings sem sendur verður til þeirra í vikunni!Myndasyrpa frá kvöldinu er svo væntanleg síðar!
(Hér til hliðar gefur að líta forsetahjónin en þau ávörpuðu samkomuna og dönsuðu svo frameftir nóttu...reyndar eru þetta Kristján Freyr ásamt konu sinni Bryndísi)
Með því að klikka á myndirnar er hægt að skoða þær í stækkaðri mynd.





