Starfsmannafélag Pennans

Thursday, January 24, 2008

Keilumót Pennans 2008


Það var mikil stemning og mikill hiti í fólki í kvöld í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð þegar Keilumót Pennans fór fram. Frábær hópur var mættur til að skemmta sér og keppa um leið um titilinn Keilukóngur og Keiludrottning Pennans.

Borgar sýndi fádæma einbeitingu og færni, sveiflan var líka einkar góð...

Keppnisskapið var mikið hjá hópnum og var þolinmæðin lítil þegar kom að því að bíða eftir kúlunni að koma til baka. Þarna eru Heidi (AU) og Elfa (HF) að kalla eftir kúlunum.

Magga (H2) mætti aðeins of seint en náði að stimpla sig inn í leikinn með þrumuköstum.

Ásdís (AU) fékk viðurkenningu fyrir mikla tískuvitund en hún valdi einungis kúlur sem tónuðu við peysuna.

Eftir harðan en mjög skemmtilegan leik var komið að veitingunum. Í boði voru ýmsir smáréttir og flatbökusneiðar. Eftir að allir höfðu fengu nægju sína þar var komið að því að tilkynna sigurvegarana...

Valva (KR) og Guðmundur (AU) voru hlutskörpust og hlutu hina eftirsóttu titla. Reyndar fór það nú svo að bikar Keiludrottningarinnar var með áletruninni "Keiludróttning Pennans" sem er alveg nýr titill! Allir höfðu nú bara gaman af því.
Hópurinn skemmti sér mjög vel og áttu mjög gott kvöld. Við í stjórn Starfsmannafélagins þökkum kærlega fyrir þátttökuna.