Thursday, January 24, 2008
Monday, November 12, 2007
Nú falla öll vötn til Borgarfjarðar

Friday, September 21, 2007
Lokaútkall
Starfsmenn Pennans kalla ekki allt ömmu sína greinilega (sem er mjög gott, það er mjög slæmur ávani þegar fólk kallar alla ömmu sína) og ætla að fjölmenna á Grímuballið. Við erum búin að telja saman allt að 70 manns sem við vitum um að eru á leiðinni. Nokkur vinnustaðapartí verða víst fyrir ball þar sem fólk getur borið saman búninga sína fyrir ballið.(myndin er tekin á nýliðakynningu á dögunum þar sem Kjartan Kjartansson heilsaði uppá nokkra nýja starfsmenn í röðum Pennans)
Thursday, September 20, 2007
Erla og Magga ætla að skemmta sér ærlega
Á ferðinni hittum við Erlu Brynjars framkvæmdastjóra innlits, útlits, framstillinga- og fylgihlutasviðs verslana Pennans og Margréti verslunarstjóra í Hallarmúla 2. Þær voru á rúntinum.
Blm: Sælar stúlkur, eru þið orðnar spenntar?
Erla: Tíhíhí..já, við hlökkum svo mikið til. Erum að reyna að velja búningana.
Magga: .. við erum ekki alveg búnar að ákveða.
Blm: Eigið þið nokkuð í vandræðum með það?! Ég heyrði eitt gott ráð og það er að vera það sem manni langaði til að verða þegar maður yrði stór!
Magga: Mig langaði að verða bóndi.
Erla: Mig langaði að verða skreytla.
Blm: Óóóókei, en skemmtilegt! Hey, svo er líka sparnaður að finna bara einn búning eins og til dæmis að vera kýr. Þið dragið svo bara um hvor verður bakhlutinn.. eða skiptist á.
Erla: Það gæti samt orðið eitthvað vesen að fara niður í bæ eftir ballið, að komast inn á staðina og svoleiðis.
Magga: ..svo er víkingasveitin á vakt! Þeir hafa kannski aldrei sé kú á rölti í bænum og bregðast ókvæða við.
Blm: Já, það er rétt. Allavega ekki pissa á víðavangi ef þið farið niðrí bæ. Má bjóða ykkur óskalag að lokum?
Erla og Magga: Já, við viljum heyra lagið "..núna ertu hjá mér Nína"!
Blm: Hvað...Nína í Griffli þá?
Magga: Já, við viljum að Nína komi líka á ballið!
Blm: Glæsilegt, þakka ykkur fyrir og sjáumst annað kvöld!
Wednesday, September 19, 2007
Jón Múli ætlar að koma
Við heimsóttum Jón Múla verslunarstjóra Eymundsson í Kringlunni-norður í gær og tókum við hann stutt viðtal. Fyrir þau ykkar sem kannast ekki við að þekkja einhvern sem heitir Jón Múli þá er þetta hann Nalli okkar.Friday, September 14, 2007
Frábær stemning!
Frábær stemning hefur myndast fyrir Grímuballinu og frést hefur að mikill metnaður sé uppi í mörgum deildum Pennans með að vinna búningakeppnina, enda heiðurinn mikill og glæsileg verðlaun í boði. Búningakeppnin er í 4 flokkum:Flottasti búningurinn
Frumlegasti búningurinn
Mesta viðleitnin
Besti vinnustaðurinn
Fulltrúi Starfsmannafélagsins hitti fyrir í vikunni glæsilegan hóp nýliða innan raða starfsmanna Pennans. Þeir voru hinir hressustu og hlökkuðu mikið til grímuballsins. Við bjóðum þau sérstaklega velkomin í hópinn og hlökkum til að sjá þau á ballinu í sínu skrítnasta pússi...!
Fréttaritari Starfsmannafélagsins tók stutt viðtal við söngvara og framherja hljómsveitarinnar Geirfuglanna; Halldór Gylfason.Blm: Sæll Halldór, hvernig er stemningin í herbúðum Geirfugla fyrir Grímuballið næst helgi?
HG: Já, blessaður. Það mætti segja að það væri blanda af tilhlökkun og kvíða.
Blm: Nú, hverju er að kvíða?
HG: Jahh, við höfum verið í basli með búningana okkar. Vonum að þeir verði tilbúnir fyrir ballið. Þegar búið var að hanna sniðið fórum við í að gradera fyrir hvern og einn og svo á Þorkell harmonikkuleikari overlock vél heima og er að reyna að tjasla þessu saman.
Blm: Nohh. Það er allt lagt í þetta. Hvernig búningar eru þetta og hvað verður á prógramminu þetta kvöld.
HG: Ef ég ætti að segja þér það þá þyrfti ég kála þér í framhaldi, svo mikil leynd hvílir yfir þessu. Viltu það...?
Blm: Uhhh.. nei takk! Óþarfi að vera með einhverjar hótanir. Viltu segja eitthvað að lokum?
HG: Já, við sjáumst bara í fantastuði næsta föstudag, við skemmtum okkur mjög vel með starfsmönnum Pennans á árshátíðinni og hlökkum til að hitta sem flesta.
Blm: Takk fyrir.
Friday, September 07, 2007
Grímuball aldarinnar... snýr aftur!
Já, þið heyrðið rétt. Það er komið að fyrsta atburði Starfsmannafélags Pennans haustið 2007. Og nú verður tekið á því með trukki og dýfu! Eftir vel heppnaða skólavertíð ætlum við öll að fjölmenna og skemmta okkur saman. Við bjóðum svo nýja starfsmenn í okkar liði sérstaklega velkomna og vonumst til að sjá þá á ballinu, enda tilvalin leið til að kynnast hópnum. Á sama tíma í fyrra fór hið goðsagnakennda Grímuball fram og vakti grenjandi mikla lukku viðstaddra. Æ síðan hefur stjórn Starfsmannafélagsins verið undir mikilli pressu frá starfsmönnum að halda grímuballið aftur. Og það er það nákvæmlega sem við ætlum okkur að gera!(Á myndinni er einn sigurviss keppandi í búningakeppninni síðan í fyrra)
Grímuball Pennans
Föstudaginn 21. september 2007 kl. 22.00 - 02.00
Þróttaraheimilinu í Laugardal, hljómsveitin Geirfuglarnir skemmta.
Frítt inn fyrir alla starfsmenn Pennans, 500 kr. fyrir maka, vini og vandamenn. Verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegustu búningana.
Veitingar seldar á staðnum á kostnaðarverði, einnig er leyfilegt að koma með þær með sér.
For our english speaking friends:
The Return of Grímuball aldarinnar!
We are all going to a Grímuball (costume party) on the 21. of september. It is going to be hillarious fun. The Geirfuglar (great auks) will play tremendous but out of date (almost extinct) music. We are going to have a blast and take it with a truck and a dip.. if you not what we mean!
(on the pic you see a bee from our last Grímuball. "..to bee or not to bee in the best búningur")
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir og færslur um Grímuballið 2006.
Fylgist með á þessari síðu, setjið hana í Favorites!
